„Ætli þetta sé ekki örugglega prentvilla?“: orðræða leikskólafólks á samfélagsmiðlum á tímum Covid
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.3Lykilorð:
leikskóli, starfsfólk leikskóla, menntahlutverk leikskóla, CovidÚtdráttur
Markmið rannsóknarinnar sem hér er kynnt var að orðræðugreina umræður starfsfólks leikskóla á Facebook á Covid-tímanum, umræður sem spruttu upp í kjölfar a) ákvarðana stjórnvalda um skólastarf og b) opinberrar umfjöllunar um leikskóla. Tilgangurinn var að greina upplifun starfsfólks með því að rýna í orðanotkun, hugtök, lýsingar og myndlíkingar. Niðurstöður sýna vissa þversögn; margt starfsfólk óttaðist að smitast og var kvíðið en var um leið stolt af því að geta lagt hönd á plóg fyrir samfélagið á erfiðum tímum. Þrástefin í umræðunni voru fjögur; ótti starfsfólks við að smitast í vinnunni, upplifun af vanþekkingu stjórnvalda á starfsemi leikskóla, virðingarleysi við starfsemi leikskóla og virðingarleysi við starfsfólk leikskóla. Þegar leið á Covid-tímann má greina að innlegg urðu almennt beinskeyttari og lýstu mörg þreytu, sárindum og jafnvel uppgjöf en þarna var líka hópur sem hélt í jákvæðni út tímabilið. Draga má þá ályktun að stjórnvöld hefðu getað gert betur í ákvörðunum sem snertu leikskóla á Covid-tímanum og af því má draga lærdóm til framtíðar.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Anna Elísa Hreiðarsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.