„Það er bara fjallað um hið neikvæða, ekki allt það frábæra starf sem unni er“: viðhorf leikskólakennaranema til fjölmiðlaumfjöllunar um leikskólastarf

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/tuuom.2026.35.5

Lykilorð:

leikskólakennaranemar, leikskólar, fjölmiðlaumfjöllun, fagvitund

Útdráttur

Fjölmiðlar ráða ekki aðeins miklu um það hvaða málefni fá athygli heldur einnig hvernig þau eru metin í samfélaginu. Á undanförnum árum hefur umfjöllun um leikskólastarf á Íslandi aukist, og áhersla hefur að mestu verið lögð á áskoranir og vanda innan starfsgreinarinnar. Slík framsetning getur haft áhrif á ímynd starfsins. Í þessari rannsókn eru viðhorf leikskólakennaranema til fjölmiðlaumfjöllunar um leikskólastarf skoðuð og kannað hvaða þýðingu þeir telja að hún hafi fyrir eigin líðan og væntingar, sem og fyrir sýn almennings á starfið. Rannsóknin er byggð á svörum úr spurningakönnun meðal 100 leikskólakennaranema í tveimur háskólum. Niðurstöðurnar benda til þess að nemendur upplifi fjölmiðlaumfjöllun að mestu neikvæða og þeir lýsa áhyggjum af áhrifum hennar á eigin líðan og framtíðarsýn í starfi. Jafnframt telja þeir að umfjöllunin hafi áhrif á viðhorf almennings og dragi úr virðingu fyrir fagmennsku leikskólakennara. Þá kemur fram að oft sé frekar litið á leikskóla sem þjónustustofnanir fyrir foreldra og vinnumarkað en menntastofnanir.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Um höfund (biographies)

  • Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir (ios@hi.is) er dósent í leikskólafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar hafa beinst að leik, starfsháttum og fagmennsku leikskólakennara, starfsþróun þeirra og starfendarannsóknum. Hún hefur tekið þátt í fjölda innlendra og alþjóðlegra rannsóknarverkefna á sviði leikskólastarfs í samstarfi við leikskólakennara og aðra fræðimenn.

  • Svava Björg Mörk, Háskóli Íslands - Menntavísindasvið

    Svava Björg Mörk (svavabm@hi.is) er dósent í menntastefnum og stjórnun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar snúast einkum um menntun og fagmennsku leikskólakennara, samstarf í leikskólakennaramenntun, þróun lærdómssamfélags í leikskólum og starfstengda leiðsögn í skólastarfi. Rannsóknir hennar eru því framlag til nýrrar þekkingar á sviði starfsþróunar kennara og leikskólastarfs.

  • Samuli Ranta, Laplandsháskóli - Menntavísindasvið

    Samuli Ranta (Samuli.ranta@ulapland.fi) er doktor í menntunarfræðum ungra barna og sérfræðingur við Menntavísindasvið Lapplandsháskóla í Finnlandi. Rannsóknir hans beinast einkum að vellíðan kennara, teymisstjórnun og teymisvinnu innan leikskólastarfs. Hann leggur einnig áherslu á að efla leikskólakennaramenntun og þróa starfshætti í háskólanámi sem styðja samstarf og sjálfbæra faglega þróun

Niðurhal

Útgefið

2026-06-24