Notkun Agile á Íslandi
DOI:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2022.19.2.4Lykilorð:
Agile, verkefnastjórnun, samskipti.Útdráttur
Hér er til skoðunar notkun forskrifta sem kenndar eru við Agile. Markmið rannsóknarinnar sem hér er kynnt var að skoða Agile út frá upplifun starfsfólks og byggir rannsóknin á eigindlegri rannsóknaraðferð. Gagnaöflun fór fram með viðtölum við 25 starfsmenn nýskapandi hugbúnaðarfyrirtækja hjá samtals 10 fyrirtækjum. Til að fá sem best yfirlit yfir notkun Agile hér á landi var áhersla lögð á að skoða fyrirtæki með ólíkan starfsmannafjölda, allt frá sprotafyrirtækjum yfir í stór rótgróin fyrirtæki. Niðurstöður leiddu í ljós að enginn viðmælandi taldi sitt teymi starfa eftir einni skilgreindri Agile forskrift, heldur aðlöguðu fyrirtækin Agile ferla að eigin aðstæðum og stærð fyrirtækis. Þær forskriftir sem fyrirtækin notuðust við áttu þó margt sameiginlegt með þeim Agile forskriftum sem kenndar eru við Scrum og Kanban. Niðurstöðurnar vörpuðu einnig ljósi á mannlega þætti í útfærslu á Agile forskriftum og gáfu til kynna að helstu kostir við notkun á Agile væru aukin samskipti bæði innan teymis og við notendur ásamt auknum sveigjanleika. Þó komu einnig í ljós áskoranir við að starfa eftir Agile aðferðafræði. Ferlarnir þóttu auka gæði og sveigjanleika við þróun nýrra lausna í krefjandi umhverfi nýsköpunar sem leiddu til tíðra breytinga sem viðmælendur upplifðu sem andlega áskorun, jafnvel þótt Agile ferlar reyndust gagnlegir til að takmarka áhrif óvissu á vöruna sjálfa. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á mikilvægi þess að þekkja þessar áskoranir og gætu nýst til draga úr áhrifum þeirra með aukinni þekkingu.Niðurhal
Útgefið
19.12.2022
Hvernig skal vitna í
Aspelund, E. Ýr G., Sturludóttir, S., & Torfason, M. Þór. (2022). Notkun Agile á Íslandi. Tímarit Um viðskipti Og efnahagsmál, 19(2), 55–78. https://doi.org/10.24122/tve.a.2022.19.2.4
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi
Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.