Útvistun verkefna á sviði mannauðsmála á Norðurlöndum
DOI:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2019.16.1.3Lykilorð:
Útvistun mannauðsmála, úthýsing mannauðsmála, mannauðsstjórnun, stefnumiðuð mannauðsstjórnun, Norðurlönd, fagleg kjarnaverkefni, umsýslu- og rekstrarverkefni.Útdráttur
Markmið greinarinnar er að bera saman umfang útvistunar á sviði mannauðsmála meðal fyrirtækja og stofnana í Danmörku, Finnlandi, Íslandi og Svíþjóð. Varpað er ljósi á umfang útvistunar á kjarnaverkefnum og umsýslu- og rekstrarverkefnum. Umfangið er borið saman milli landanna fjögurra og það greint á Norðurlöndum í heild eftir þremur meginatvinnugreinum. Gagna var aflað meðal forsvarsmanna mannauðsmála í alls 797 fyrirtækjum og stofnunum í löndunum fjórum. Niðurstöður sýna að norræn fyrirtæki og stofnanir útvista í meiri mæli rekstrar- og umsýsluverkefnum á sviði mannauðsmála en faglegum kjarnaverkefnum. Íslensk fyrirtæki útvista almennt í minni mæli en skipulagsheildir í samanburðarlöndunum. Algengast er að verkefnum er snúa að eftirlauna- og lífeyrissjóðsmálum sé útvistað, en breytilegt er á milli landa hvort útvistun launavinnslu eða útvistun upplýsingakerfa á sviði mannauðsmála komi þar á eftir í umfangi. Í fagtengdum kjarnaverkefnum er þjálfun og þróun helst útvistað í einhverjum mæli. Fyrirtæki og stofnanir í heilbrigðis-, velferðar- og skólamálum og opinberri stjórnsýslu útvista í minni mæli en aðrar greinar. Útvistun launavinnslu er umfangsmest í Finnlandi og í þjónustugreinum þegar Norðurlöndin eru skoðuð í heild.Niðurhal
Útgefið
20.06.2019
Hvernig skal vitna í
Einarsdóttir, A., & Eðvarðsson, I. R. (2019). Útvistun verkefna á sviði mannauðsmála á Norðurlöndum. Tímarit Um viðskipti Og efnahagsmál, 16(1), 41–54. https://doi.org/10.24122/tve.a.2019.16.1.3
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi
Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.