Ferðaþjónusta og virkjanir til bjargar byggðum?

Höfundar

  • Anna Dóra Sæþórsdóttir
  • Þorkell Stefánsson

DOI:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2017.14.1.5

Lykilorð:

Ferðaþjónusta, ferðamennska, rammaáætlun, náttúruvernd og orkunýting, byggðaþróun, virkjanir.

Útdráttur

Tækifæri á sviði ferðaþjónustu og nýtingar orkuauðlinda eru oft nefnd sem leiðir til þess að takast á við breytta atvinnuhætti, sporna við fólksfækkun í dreifbýli og skapa verðmæti. Báðar greinarnar nýta náttúruna sem auðlind en geta þær farið saman eða eru fyrirsjáanlegir hagsmunaárekstrar milli þeirra? Til þess að komast að því hvort ferðaþjónustuaðilar telji fyrirhugaðar virkjunarhugmyndir rýra möguleika ferðaþjónustunnar til að efla byggð í landinu voru tekin hálfstöðluð viðtöl við 65 ferðaþjónustuaðila á sex svæðum á landinu. Að mati viðmælenda er ferðaþjónustan sú atvinnugrein sem býður upp á mesta möguleika til framtíðar til að efla atvinnulíf í dreifbýli og höfðu þeir flestir séð þess glögg merki undanfarin ár. Margir viðmælenda töldu orkuvinnslu og ferðaþjónustu fara illa saman vegna neikvæðra áhrifa orkuvinnslu á náttúruna, grundvallarauðlind ferðaþjónustunnar. Óvissa um hvar verður virkjað í framtíðinni þótti jafnframt hafa tafið fyrir fjárfestingu og markaðssetningu í ferðaþjónustu á ákveðnum svæðum. Nokkrir viðmælenda nefndu dæmi um farsæla sambúð orkuframleiðslu og ferðaþjónustu og kom fram að góð samvinna milli greinanna gæti dregið úr hagsmunaárekstrum á milli þeirra. Þeir töldu að tekjur af báðum atvinnugreinunum mættu skila sér betur til svæðanna þar sem þær verða til.

Um höfund (biographies)

Anna Dóra Sæþórsdóttir

Prófessor við Háskóla Íslands.

Þorkell Stefánsson

Sérfræðingur við Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands.

Útgefið

30.06.2017

Hvernig skal vitna í

Sæþórsdóttir, A. D., & Stefánsson, Þorkell. (2017). Ferðaþjónusta og virkjanir til bjargar byggðum?. Tímarit Um viðskipti Og efnahagsmál, 14(1), 99–132. https://doi.org/10.24122/tve.a.2017.14.1.5

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar