Stjórnunaraðferðir og skipulag íslenskra fyrirtækja

Höfundar

  • Ingi Rúnar Eðvarðsson

DOI:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2006.4.1.1

Lykilorð:

Stjórnunaraðferðir, skipulag, íslensk fyrirtæki.

Útdráttur

Í þessari grein er kynnt rannsókn á skipulagi og stjórnunaraðferðum í íslenskum fyrirtækjum. Markmið hennar er í fyrsta lagi að skoða hvaða skipulagsform (skipurit) eru við lýði í íslenskum fyrirtækjum. Í öðru lagi er markmiðið að kanna hvaða stjórnunaraðferðir eru algengastar í íslenskum fyrirtækjum og í þriðja lagi er markmiðið að athuga hvort þau hafi boðið út verkefni og tekið upp formlegt samstarf við önnur fyrirtæki. Niðurstöður benda til þess að staðsetning fyrirtækja á landinu og sú starfsgrein sem fyrirtæki starfa í hafi óveruleg áhrif á stjórnunaraðferðir eða skipulag þeirra. Stærð fyrirtækja og menntun stjórnenda hafði hins vegar mjög mikil áhrif á marga þætti stjórnunar og skipulags, svo sem þegar stuðst var við samþykkt skipulag, liðsvinnu, samstarf fyrirtækja og útboð verkefna. Engin sjáanleg tengsl voru á milli stjórnunaraðferða og rekstrarárangurs. Helsta skýring þess er að mikill meirihluti fyrirtækja skilaði hagnaði árið 2003. Þörf er á frekari rannsóknum á stjórnunaraðferðum og skipulagi til að efla íslenskt atvinnulíf og tryggja varanlegan árangur fyrirtækja.

Um höfund (biography)

Ingi Rúnar Eðvarðsson

Háskólinn á Akureyri

Niðurhal

Útgefið

15.06.2006

Hvernig skal vitna í

Eðvarðsson, I. R. (2006). Stjórnunaraðferðir og skipulag íslenskra fyrirtækja. Tímarit Um viðskipti Og efnahagsmál, 4(1), 3–26. https://doi.org/10.24122/tve.a.2006.4.1.1

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar