Arftakaáætlun til að draga úr áhættu og byggja upp leiðtogafærni
DOI:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2024.21.1.2bLykilorð:
Arftakaáætlun; æðstu stjórnunarstöður; jöfn tækifæri; stjórnarmenn.Útdráttur
Í nýrri skýrslu Alþjóðabankans, frá árinu 2024, sem nær til 190 landa er kynjabilið á heimsvísu mun meira en áður var talið. Ekkert land í heiminum veitir konum sömu tækifæri og körlum á vinnumarkaði og bent er á að ef bilið yrði brúað gæti verg landsframleiðsla á heimsvísu aukist um allt að 20%. Þó Ísland sé fremst á heimsvísu þegar kemur að jafnréttismálum er margt enn óunnið til að jafna tækifæri kynjanna til stjórnunarstarfa í atvinnulífinu. Hlutfall karla í framkvæmdastjórastöðum á almennum markaði er 79% og karlar eru 75% allra stjórnarmanna (Creditinfo, 2024). Einungis þrjár konur gegna starfi forstjóra skráðra félaga á Nasdaq Iceland í maí 2024 á móti 24 körlum. Rannsóknir meðal áhrifakvenna í íslensku atvinnulífi og meðal stjórnarkvenna í öllum skráðum félögum hér á landi hafa bent á að ein þeirra leiða sem hægt er að fara til að draga úr kynjabilinu í atvinnulífinu er að innleiða arftakaáætlanir í fyrirtæki hér á landi. Því var markmiðið með þessari rannsókn að fá fram viðhorf og upplifun karla sem sitja í stjórnum allra skráðra félaga til arftakaáætlunar. Rannsóknarspurningin sem lagt var upp með er: Hvert er viðhorf og reynsla karlkyns stjórnarmanna skráðra félaga til innleiðingar arftakaáætlana til þess að draga úr kynjabilinu í æðstu stjórnunarstöðum hér á landi? Niðurstöðurnar benda til að almennt sé of lítil þekking á hugtakinu arftakaáætlun meðal stjórnarmanna hér á landi. Þó eru nokkur félög sem hafa innleitt arftakaáætlanir og þar telja stjórnarmenn að stjórnir og stjórnendur séu betur undir það búin ef lykilstarfsfólk hættir hjá félaginu. Nýnæmi rannsóknarinnar felst í því að þetta er fyrsta rannsóknin þar sem karlar í stjórnum allra skráðra félaga á markaði lýsa reynslu sinni og viðhorfi til arftakaáætlana sem verkfæris til þess að draga úr kynjahalla í stjórnendastöðum.
Niðurhal
Útgefið
Hvernig skal vitna í
Tölublað
Kafli
Leyfi
Greinar í tímaritnu eru gefnar út undir leyfinu(Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 4.0 International License).
Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.